Færsluflokkur: Bloggar

Hmm, hver er að taka feil?

Ég get nú ekki betur séð að þessi stórkostlega mynd sé af Pétri Pálssyni, en ekki af Kára... fyndið
mbl.is Kári og félagar töpuðu í Kolding
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tvífarar?

Hvernig er það er þessi ekki svoldið líkur þessum?

Nei, ég bara spyr...


Hmmm...

Já kæru vinir sem og aðrir, það hefur lítið borið á mér hérna uppá síðkastið, ástæðan er einföld: ég hef einfaldlega ekki verið að blogga, þannig var nú það. En núna er ég búinn með orðaforðann minn í dag.

Kveð ég ykkur að sinni með þessarri vísu:

Bjartir dagar framundan:

..... ...... ...... ....... ..... ... .. .. ..... .... ... 

... ...... ......... ...... .... ... .. ..... . . ... 

... .. .. .... ... 

..... .. .. ..

....... .. .. ...... ... ... 

... .. .. ...... ... .. ..... ... ... ... .. ... .... .. !

.... Endir..


Svei mér þá...

Komið sæl kæru vinir svo sem og annað fólk. Núna er loksins komið að þvi að setja eitthvað inná síðu þessa.. ég veit, ég er búinn að vera alveg afspyrnu lélegur í því að blogga, en ég hugsa að það eigi eftir að bætast úr því uppúr þessu, þar sem ég er ásamt stórum hluta þjóðarinnar orðinn atvinnulaus, ætli endi ekki bara með því að maður reyni að meikaða...fara að skrifa bók eða eitthvað þvíumlíkt. En hvað með það... Maður verður að reyna að þrauka og standa þetta af sér, sem sagt að sníða sér stakk eftir stýrivexti...  en hvað með það.

Stöndum saman, Íslenskt, Já takk!

Tryggvi unglingur, þunnhærðari en nokkru sinni fyrr... 


Svei mér þá...

Seisei já kæru vinir og annað folk, í dag er þriðjudagur sem hefur sömu þýðingu fyrir mig í viku hverri, þ.e. það eru tveir dagar í föstudag, jibbí eða þannig...

 

Verið hress og þorið að setja inn athugasemdir, það má vera um hvað sem er,  t.d. Veðrið, efnahagsmál, heilsufar, eða hversu afspyrnu lélegur ég er að verða í blogginu... verið sterk, segið ykkar skoðanir.

Verið blessuð.

Tryggvi tuðbolti kveður


Dagurinn í dag

Komiði sæl.

Ég ætlaði bara að láta vita af því að ég komst í tölvu í 5 mínútur, þá nýtti ég mér tímann í að setja smáræði inn á síðu þessa.

Í dag var gefinn 5 króna afsláttur á bensín og dísilolíuverði á bensínstöðvum landsins, sem er ágætt.. allavegana, dagurinn í dag var ágætur hjá mér, nóg að gera í vinnunni, svo kom konan með mat í vinnuna til mín, sem var æðislegt...ég er nokkuð viss um að ég eigi bestu konu í heimi..en það er mitt mat.

hvernig var fimmtudagurinn 17. júlí hjá ykkur?


Leiðrétting á færslunni fyrir neðan...

Ég sá allt í einu að ég hafði gert vitleysu í færslunni á undan, ég ákvað samt að breyta því ekki, þetta væri miklu skemmtilegri svona, ákvað samt að leiðrétta þetta þannig að ég fengi ekki einhvern spæjara heim til mín, svona ef einhver skyldi nú vera að lesa þessa vitleysu. Þetta á sumsé að vera líf, en ekki lík.

Takk fyrir mig


Risinn aftur upp frá lífinu...

Halló...ég er kominn aftur, hvarf frá í smá tíma, sökum þess að ég eignaðist allt í einu lík, sem var miklu áhugaverðari en að sitja fyrir framan tölvuskjá að blaðra eitthvað á síðu þessa.

Engu að síður verð ég að tilkynna að Fídel Telecastro var að koma úr Makeover, þ.e.a.s. hann var að fá í sig rándýrt Kinman Broadcaster pickup-sett, og núna hljómar hann ekki vel, heldur alveg hreint unaðslega æðisgengilega geggjað vel! En þið sem vitið ekki hvað það er þá er útskýringin mín á þessu fyrirbæri svohljóðandi: Þetta er eitthvað voða mega ofur flott gítar hljóð eitthvað...

Engu að síður þá verð ég að lofsyngja þessu frábæra veðri sem er búið að vera undanfarna daga, þetta er bara eins og ég hefði pantað það sjálfur, það meiri að segja kom rigning nokkrum sinnum þannig að ég er ekki búinn að þurfa að vökva garðinn nema bara einusinni.

En núna ætla ég að kveðja í bili, og þar sem ég á mér loksins líf, þá get ég ekkert sagt til um hvenær ég troða inn næstu færslu.

Ef einhver hefur athugasemdir varðandi næstu færslu þá má setja það í gestabók eða athugasemdir. Einnig má panta tíma í síma: 555-pantatima-535102-unglingur-2532 (hver mínúta kostar 1500 ískr.)

Þar til næst, ég segi sem fæst.

Remúlaðiprinsinn kveður.


Mikið var...

Fann áhugaverða grein á heimasíðu vísis, hún fjallar um sveitunga minn, sem er búinn að standa sig vel í Drykkjuleysi. En hann vitnar einmitt í Stórvin minn, sem er reyndar ekkert sérstaklega hávaxinn, en þó er hann nokkuð sætur kall, og þó nokkuð skemmtilegur.

Sjá hér


Já, ég gleymdi einu...

Ég fór ásamt Árna vitleysingja á bílasýninguna í Kóraninum um helgina, það var snilld. Það var svo mikil snilld að ég gerði næstum því í buxurnar.. Svo held ég að ég hafi yngst um 10 ár þegar Shelby bílarnir voru settir í gang.. það myndi þýða að ég væri orðinn tveggja ára, eða hvað?

Allavegana fer þessarri prófavitleysu að linna, og maður getur farið að vinna eins og maður...og grætt PENINGA! sem er nú algjör undirstaða í íslensku hágæða skuldasamfélagi í dag.

Þar til næst, bíðið æst.

Tryggvi Ungingur, tveggja á ný.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband